Vistvæn framleiðsla
Froskurinn býður upp á framúrskarandi hreinsiefni sem eru mild við húðina og umhverfisvæn. Formúlurnar byggja á hráefnum úr jurtaríkinu, umbúðirnar eru úr endurunnu plasti, og framleiðslan sjálf er vistvæn, í samræmi við slagorð okkar um heildræna sjálfbærni.
1986 – Frosch Neutral Cleaner
Á milli 1980–1990 urðu mörg umhverfisslys sem vöktu athygli á mikilvægi náttúruverndar. Þetta leiddi til þess að menn tóku í sívaxandi mæli að endurskoða framleiðsluferla á öllum sviðum daglegs lífs, þar á meðal fyrir heimilið. Fjölskyldufyrirtækið Werner & Mertz svaraði þessari þróun með vistvæna vörumerkinu Frosch og setti sína fyrstu umhverfisvænu vöru, The Neutral Cleaner, á markað árið 1986. Í dag er Frosch fáanlegt nánast um alla Evrópu og í sívaxandi mæli í Japan, Suður-Kóreu og Bandaríkjunum.

Meira en 80 vörutegundir
Hreinsiefnið „The Neutral Cleaner“ markaði upphafið að velgengni sem var í senn græn og vistvæn. Frosch býður í dag upp á margvísleg hreinsiefni sem halda heimilinu þrifalegu á fyrirhafnarlítinn og vistvænan hátt, hvort sem það er alhliða hreinsilögur, uppþvottalögur eða glerfægilögur. Segja má að Frosch-vörurnar nýtist jafnt til að skúra gólfin og sjá um fatahrúgur sem þarf að þvo. Á boðstólum eru einnig blettaeyðir, hreinsiefni, þvottaduft og ofnæmisfrí mýkingarefni fyrir fataþvott. Frosch býður upp á allt það sem þarf til að þvotturinn verði þægilegur og tandurhreinn.
Frosch gerir heimilið enn þægilegra
Frosch býður nú vistvænar vörur fyrir öll þrif á heimilinu, þar á meðal sérstaka barnalínu sem verndar viðkvæma húð barna. Frosch Oase-línan kemur með fjölbreyttum ilmefnum, unnum úr náttúrulegum olíum, sem aðlagast andrúmslofti heimilisins og eru í fallega hönnuðum flöskum. Vörumerkið er einnig viðurkennt fyrir snyrtivörur, þar á meðal milda handsápu í endurnýtanlegum umbúðum og sápuskömmturum sem má fylla á. Froskurinn litli stekkur inn í sturtuna með Frosch Senses-línunni, sem býður upp á sturtusápur fyrir viðkvæma húð, hannaðar með það að markmiði að fólki líði vel í eigin skinni. Auk þess erum
við í sífellu að þróa nýjar Frosch-vörur fyrir framtíðina.
