Uppruninn skiptir máli fyrir loftslagið
Vörur frá Frosch eru hannaðar í samræmi við meginregluna um hringrásarhagkerfi – allt frá samsetningu til umbúða.
0
Prósent
Frosch umbúðir eru unnar úr endurnýttu plasti, svonefndu resýklati (recyclate).
0
Ár
Allt frá upphafi framleiðslunnar, árið 1986, hafa efnablöndur úr jurtaríkinu verið notaðar til framleiðslu á vörum Frosch. Vörur Frosch hafa því eingöngu verið framleiddar úr endurnýtanlegum hráefnum undanfarið 39 ár.
360
Gráður
Að búa til nýtt úr gömlu
Rækilega endurunnið
Til að vernda umhverfið eru allar Frosch umbúðir hannaðar með tilliti til endurvinnslu. Frosch fylgir þeirri stefnu að nota endurunnið plast í allar sínar umbúðir.


Hönnun fyrir endurvinnslu
Frosch hannar allar sínar umbúðir með tilliti til þess að auðvelt sé að endurnýta þær og fylgir stefnu Design for Recycling (DfR). Vörurnar eru hannaðar þannig að þær séu einfaldar í endurvinnslu, t.d. með því að nota lím eða festingar sem auðvelt er að fjarlægja.
Efnafræði fyrir framtíðina
Umhverfisvænar vörur fyrir heimilið
Hringrásarhagkerfið leikur lykilhlutverk í þróun efnasamsetningar í vörum Frosch. Hráefnin koma úr jurtaríkinu og þeim er ætlað að verða áburður að nýju þannig að þær skili sér vel út í náttúruna.


Niðurbrot í náttúrunni er lífsnauðsynlegt
Frosch leggur mikla áherslu á umhverfisvæna nálgun í þróun hreinsiefna, með efnasamböndum sem brotna hratt niður í náttúrunni. Þetta er okkar leið til að sýna umhyggju fyrir umhverfinu og láta framleiðsluvörurnar verða hluta af hringrásarhagkerfinu.
Til verndar fjölbreytni í lífríkinu
Frosch hefur ætíð unnið að verndun lífríkisins í samstarfi við NABU og BOS samtakanna og leggur áherslu að tryggja fjölbreytni plöntulífs og forðast einræktun.

