Heildræn sjálfbærni
Werner & Mertz, fyrirtækið á bak við Frosch-vörurnar, hefur algjörlega tileinkað sér sjálfbærni. Sögu þess má rekja í nokkrum áhugaverðum áföngum.
1867
Stofnun fyrstu verksmiðju Gebrüder Werner, sem framleiddi vörur úr vaxi, en þróaðist síðar í Werner & Mertz
1986
Frosch vörumerkið sett á markað og markar frumherjastarf í vistvænni framleiðslu.
2009
Frosch vinnur Þýsku sjálfbærniverðlaunin.
2012
Frosch frumkvæðið sett af stað.
2019
Frosch setur fyrstu fullkomlega endurnýjanlegar einsefnis-umbúðir á markað.
Efnafræði fyrir framtíðina
Frosch frumkvæði
Frosch setti af stað sjálfbærar framtíðarlausnir til að vernda umhverfið og tryggja nýtingu auðlinda, með það að markmiði að verða kraftmikill leiðtogi í hreingerninga iðnaðinum. Frosch frumkvæðið byggir á skapandi hugsun þar sem leiða má saman margvísleg fyrirtæki og stofnanir og fá þau til að sækja fram með nýrri og vistvænni nálgun í viðskiptum.

Skuldbinding okkar til sjálfbærni
Werner & Mertz, fjölskyldufyrirtækið sem framleiðir Frosch-vörurnar, hefur ætíð haft að leiðarljósi aukna útbreiðslu sjálfbærni. Með skuldbindingu sinni gagnvart sjálfbærni hefur fyrirtækið orðið hreyfiafl fyrir sjálfbærar lausnir við vernd umhverfisins og nýtingu auðlinda

Frumkvæði við Resyclat
Með resyclat-frumkvæðinu, sem Werner & Mertz ýtti úr vör með samstarfsaðilum sínum árið 2012, skuldbatt fyrirtækið sig til að sjá til þess að plastúrgangur frá evrópskum heimilum, eins og „Gula pokanum“ í Þýskalandi, væri endurunninn í þaula þannig að endurnýta mætti þau resyclöt, sem til féllu, í umbúðanotkun okkar.
Frosch verndar froska
„Frosch verndar froska“ verkefnið hefur verið í gangi síðan 1998. Í samvinnu við NABU Nature Conservation Centre Rhine Floodplain verkefnið, hefur Werner & Mertz skuldbundið sig til að bæta lífsumhverfi trjáfrosksins og annarra froskdýrategunda sem lifa á innfæddum Rínarflóðasvæðum. Hér er NABU að þróa hugmyndir og verkefni til að stuðla að sátt milli manns og náttúru.


Frosch styður akuryrkju í Evrópu
Frosch byggir á yfirborðsvirkum efnum sem eru fengin úr endurnýjanlegum, plöntutengdum uppruna. En við erum ekki sátt við það eitt! Við höfum þróað metnaðarfullt verkefni í því skyni að finna leiðir til að nýta yfirborðsvirk efni úr evrópskum olíuplöntum eins og repju, ólífu, sólblómaolíu og hör til lengri tíma litið og forðast þannig notkun yfirborðsvirkra efna úr hitabeltisolíu.
EMAS
Í rúma tvo áratugi hefur Werner & Mertz fylgt heildrænni umhverfisverndarstefnu sem miðar að því að gernýta hráefni, hlífa umhverfinu og nýta auðlindir okkar betur. Við höfum fylgt umhverfisverndarstefnu síðan 2003 og framfarir okkar við nýtingu aðfanga hafa reglulega verið vottaðar af sjálfstæðum eftirlitsmönnum í aðalverksmiðju okkar í Mainz, í samræmi við reglugerðir EMAS (Eco-Management and Audit Scheme, regluverks ESB), og einnig í verksmiðjunni okkar í Hallein í Austurríki síðan 2005.

